Lyf við mígreni
Sumatriptan Apofri er lyf við mígreniköstum og fæst án lyfseðils í næsta apóteki.
Mígreni er hvimleiður sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á líf fólks. Lyfjameðferð við mígreni skilar oft góðum árangri ef lífsstílsbreytingar duga ekki til.
Sumatriptan Apofri inniheldur virka efnið sumatriptan og er notað sem bráðameðferð við mígreniköstum, með eða án fyrirboðaeinkenna.
Sumatriptan var áður aðeins fáanlegt gegn lyfseðli frá lækni og því er kærkomið að Sumatriptan Apofri sé nú á markaði sem lausasölulyf. Lyfið dregur úr víkkun æða í höfðinu og hamlar virkni í þrenndartauginni.
Sumatriptan Apofri 50 mg filmuhúðaðar töflur eru fáanlegar í tveggja stykkja pakkningu og er ráðlagur skammtur 1 tafla eins fljótt og hægt er eftir að mígrenikast hefst. Þó er verkun lyfsins óháð því á hvaða stigi kastsins það er tekið.